Buggy Klassík

Brottför kl 10:00 og 14:00

1 klukkutíma ferð - Verð frá kr. 18.900

Ferðin hefst við Skíðaskálann í Hveradölum.

Eftir stutta yfirferð á öryggismálum er farið í hlífðarfatnað og hjálmur settur upp.  Því næst er farið í Buggy bílana.

Í þessari klukkutíma löngu Buggy ferð gefst okkur tækifæri til að njóta einstakrar náttúru Íslands.  Við þeytumst á kraftmiklum Buggy bílum og keyrum yfir ár, hraun og óheflað íslenskt landslag.

Buggy bílarnir okkar er 2ja og 4ja sæta.  4x4 og sjálfskiptir.  Allir bílarnir uppfylla ítrustu öryggiskröfur eins og bílbelti og veltigrind. 

Tveir til fjórir aðilar geta verið í sama bílnum.  Oftast nær eru tveir í hverjum bíl.

Einnig er hægt að panta stakan bíl og er þá bara bílstjórinn í þeim bíl.

Innifalið:

  • Klukkutíma Buggy ferð.
  • Einangraður galli
  • Hjálmur
  • Andlitshlíf
  • Við útvegum hlífðarfatnað og öryggisbúnað fyrir örugga og þægilega ferð

Í BOÐI
Allt árið

LENGD
2 klukkustundir

ERFIÐLEIKASTIG
Auðvelt

LÁGMARKSALDUR
8 ára

BROTTFARASTAÐUR
Hveradalir

SÆKJA TIL REYKJAVÍKUR
Í boði

Gilt ökuskírteini er skilyrði til að fá að keyra Buggy bíl.

Verð miðast við að komið sé á staðinn í Skíðaskálann í Hveradölum.