Sjáðu Norðurljósin dansa

Buggy og Norðurljósin

Brottför kl. 19:00

Fjögurra tíma ferð - Verð frá kr. 79.900

Buggy, Norðurljósin og hverabakað brauð.

Við förum í stórkostlega Norðurljósaferð þar sem við förum bak við fjöllin með háu ljósin á þar til við finnum góðan stað til að sjá Norðurljósin.  Slökkvum öll ljós og njótum þess að horfa á Norðurljósin dansa á ævintýrlegan máta fyrir ofan okkur.

Við komum við og finnum heitan hver þar sem við fáum nýbakað hverabrauð, sem er einstakt að bragða í óspilltri náttúrunni.

Buggy bílarnir okkar er 2ja og 4ja sæta.  4x4 og sjálfskiptir.  Allir bílarnir uppfylla ítrustu öryggiskröfur eins og bílbelti og veltigrind. 

Tveir til fjórir aðilar geta verið í sama bílnum.  Oftast nær eru tveir í hverjum bíl.

Einnig er hægt að panta stakan bíl og er þá bara bílstjórinn í þeim bíl.

Innifalið:

  • 4ja tíma Buggy ferð.
  • Einangraður galli
  • Hjálmur
  • Andlitshlíf
  • Við útvegum allan búnað fyrir örugga og þægilega ferð

Í BOÐI
Nóvember-Mars

LENGD
4 klukkustundir

ERFIÐLEIKASTIG
Auðvelt

LÁGMARKSALDUR
8 ára

BROTTFARASTAÐUR
Hveradalir

SÆKJA TIL REYKJAVÍKUR
Í boði

Gilt ökuskírteini er skilyrði til að fá að keyra Buggy bíl.

Verð miðast við að komið sé á staðinn í Skíðaskálann í Hveradölum.