Buggy og Hellaskoðun í Raufarhólshelli

Brottför klukkan 12:00

5 tíma ferð - Verð frá kr. 69.900

Buggyferð, Raufarhólshellir og hamborgari í Gróðurhúsinu í Hveragerði.

Fimm tíma ferð þar sem fyrst er stoppað við hinn stórbrotna hraungang Raufarhólshellis sem er einn lengsti og þekktasti hraunhellir Íslands.  Hellaskoðunin tekur um 55-60 mínútur 

Ferð inn í Raufarhólshelli er einstök upplifun og þar gefst frábært tækifæri til að skoða virkni eldgosa með eigin augum, þar sem gengið er sömu leið og hraunið rann í Leitahraunsgosinu austan Bláfjalla fyrir um 5.200 árum. Á veturna myndast í hellisgólfinu miklir ísdrönglar sem gera ferðina inn í hellinn jafnvel enn áhrifameiri.

Raufarhólshellir
Raufarhólshellir

Eftir hellaskoðunina förum við á Buggy bílunum yfir til Hveragerðis og fáum okkur alvöru hamborgara í mathöllinni Gróðurhúsið.

Gróðurhúsið Hveragerði
Gróðurhúsið Hveragerði - Mathöll

Buggy bílarnir okkar er 2ja og 4ja sæta.  4x4 og sjálfskiptir.  Allir bílarnir uppfylla ítrustu öryggiskröfur eins og bílbelti og veltigrind. 

Tveir til fjórir aðilar geta verið í sama bílnum.  Oftast nær eru tveir í hverjum bíl.

Einnig er hægt að panta stakan bíl og er þá bara bílstjórinn í þeim bíl.

Innifalið:

  • Fimm tíma Buggy ferð.
  • Einangraður galli
  • Hjálmur
  • Andlitshlíf
  • Við útvegum allan búnað fyrir örugga og þægilega ferð

Í BOÐI
Allt árið

LENGD
5 klukkustundir

ERFIÐLEIKASTIG
Auðvelt

LÁGMARKSALDUR
8 ára

BROTTFARASTAÐUR
Hveradalir

SÆKJA TIL REYKJAVÍKUR
Í boði

Gilt ökuskírteini er skilyrði til að fá að keyra Buggy bíl.

Verð miðast við að komið sé á staðinn í Skíðaskálann í Hveradölum.